Tebókin

Fyrsta íslenska tebókin!

Í dag dreifum við Tebókinni sem er fyrsta alíslenska bókin sem fjallar um te og tedrykkju, nautnina og heilsuna, gerðir og aðferðir.

Te er, á eftir vatni, vinsælasti drykkur jarðar svo það er ekki seinna vænna að allar helstu upplýsingar um þennan undradrykk séu til reiðu á íslensku. Höfundar bókarinnar eru hjónin Árni Zophaníasson og Ingibjörg Jóna Friðbertsdóttir en þau eru eigendur Tefélagsins sem hefur að markmiði að fræða Íslendinga um dásemdir tes. Tefélagið er lítið fjölskyldufyrirtæki sem hefur notið mikilla vinsælda síðan þau byrjuðu en þau flytja inn sitt eigði te og bjóða upp á að fá te í áskrift.

Á Menningarnótt verður Tefélagið með testofu í miðbænum eins og fyrri ár en mikil ásókn hefur verið á þann viðburð. Í þetta skipti verður testofan haldin í Lýðveldisgarðinum við Hverfisgötu (garðurinn á milli Þjóðleikhússins og Danska sendiráðsins).

Laufblöð teplöntunnar fara langa og flókna leið áður en þau ilma úr bolla á Íslandi. Í þessari bók er ferli teræktunarinnar rakið, gerð grein fyrir sögu tesins, fjallað um fjölbreyttar tegundir og framandi bragð og listina að laga ljúffengt te.

Te fyrir alla!

INNskráning

Nýskráning