Einu sinni var stelpa sem hét Freyja Dís og vildi BARA dansa og dansa.
Nema þegar aðrir sáu til. Þá fóru hnén að skjálfa og maginn í hnút.
Freyja Dís… er falleg og skemmtileg saga sem kennir okkur að fylgja hjartanu. Birgitta Sif hefur áður notið mikillar velgengni fyrir fyrstu bók sína Ólíver sem, eins og Freyja Dís, kom fyrst út á ensku. Báðar hafa hlotið afar lofsamlega dóma hjá ýmsum dagblöðum erlendis, s.s. The New York Times:
„Sif’s story, sweet but not saccharine, is written in tuneful prose, but I was even more charmed by her cleverly detailed pencil drawings. Colored digitally in rich greens, reds, browns and blues, they’re simultaneously handsome and adorable.“
Freyja Dís sem vildi BARA dansa og dansa er fyrir alla þá sem njóta af öllu hjarta.
Um Ólíver:
*****
„… Hér er á ferðinni hrífandi bók sem er, líkt og söguhetjur hennar, alveg sérstök.“
Silja Björk Huldudóttir / Morgunblaðið