Rithöfundurinn Kristín Eiríkdóttir er meðal höfunda sem eiga smásögur í safnritinu Best European Fiction 2011 sem út kom á dögunum. Riti þessu er stýrt af ritstjóranum Aleksander Hemon – sem af mörgum er talinn einn af mest spennandi höfundum sinnar kynslóðar.
Í ritinu eru 35 sögur eftir evrópska höfunda frá 32 löndum – allt frá Albaníu til Írlands en þetta er í annað sinn sem útgefandinn Dalkey Archive Press gefur út rit af þessu tagi. Meðal höfunda sagnanna eru Þjóðverjinn Ingo Schulze og hin virta breska skáldkona Hilary Mantel.
Í ritrýni Open Letters Monthly um safnritið er Kristínu einmitt líkt við Mantel og skrif hennar sögð „stórkostleg“. Söguna, „Holur í menn“– sem birt er í ritinu með enska titlinum kom út hjá JPV útgáfu fyrir skömmu í smásagnasafninu Doris deyr. Safn það hefur þegar vakið athygli bókmenntaunnenda og hlaut til að mynda fimm stjörnur í umsögn Páls Baldvins Baldvinssonar í Fréttatímanum á dögunum