Glæpasagan Furðustrandir, eftir Arnald Indriðason, kom út í Frakklandi þann sjöunda febrúar síðastliðinn, í þýðingu Eric Boury. Bókin stökk beint í fyrsta sæti glæpasagnalistans og í þriðja sæti heildarlistans. Furðustrandir er því mest keypta glæpasagan í Frakklandi og þriðja mest keypta bókin þar í landi!
Höfundar á borð við Stieg Larsson, Henning Mankell og Jussi Adler-Olsen lúta í lægra haldi fyrir Arnaldi á listanum og ekki í fyrsta sinn því bækur Arnaldar hafa um árabil náð þeim einstæða árangri að landa fyrsta sætinu á listanum við útkomu. Þess má geta að önnur bók Arnaldar, Bettý, er einnig á topp- tíu-lista glæpasagnalistans.
Dómar um Furðurstrandir hafa verið á eina lund. Gagnrýnendur lofa bókina í hástert og fagna því að Erlendur hafi „snúið aftur“. Sabrina Champenois hjá Libération er gagntekin af sögunni og segir: „Þetta er snilldarverk, hreinn galdur. […] sjávardís í bókarformi sem heillar lesendur með segulmögnuðum tregasöng. “ Hið virta tímarit Télérama tekur undir þetta og segir: “Þetta er án efa fegursta bókin í röðinni um Erlend. Frá henni stafar dimmri og tregafullri ljóðrænu, en í lokin hillir líka undir flöktandi bjarmann af mögulegum friði.“
Í Furðuströndum er Erlendur á æskuslóðum sínum austanlands og fortíðin sækir á. Ekki aðeins atvik úr hans eigin lífi, heldur einnig önnur óleyst og óuppgerð mál.
Dagens Nyheter í Svíþjóð valdi Furðustrandir sem eina af bestu glæpasögunum sem út kom þar í landi árið 2012. Bókin var í fyrra ennfremur tilnefnd af Sænsku glæpasagnaakademíunni (Svenska Deckarakademin) sem besta erlenda glæpasaga ársins. Þá tilnefndi Crimezone hana sem bestu glæpasöguna í Hollandi árið 2012.