Fundið fé í bíó

Sena hefur tryggt sér sýningarréttinn á sænsku spennumyndinni Snabba Cash sem hefur notið gríðarlegra vinsælda í heimalandi sínu. Myndin er byggð á samnefndri bók Jens Lapidus sem Íslendingar þekkja sem Fundið fé. Krimmaaðdáendur kannast við kappann, sem ekki aðeins er vonarstjarna skandinavísku glæpasögunnar heldur einnig einn reffilegasti Svíi allra tíma – hann var t.a.m. valinn „best klæddi“ karlinn í Svíaríki hér um árið.

Bækur Lapidus, Fundið fé og Ekkert fokking klúður, hafa selst grimmt. Sögusvið þeirra beggja eru undirheimar Stokkhólms þar sem austur-evrópsk mafía ræður ríkjum. Lapidus er sjálfur starfandi lögfræðingur og hefur meðal annars varið alræmda glæpamenn og kynnst veröld þeirra, þá reynslu nýtir hann sér út í æsar til að skapa snjalla og æsispennandi sögu með þjóðfélagslegum broddi.

Hér er kynningarstikla myndarinnar – myndin kemur í íslensk bíóhús 2. júní.

INNskráning

Nýskráning