Birgitta Sif

Fullt hús stjarna fyrir alveg sérstaka bók

Silja Björk Huldudóttir skrifar um Ólíver eftir Birgittu Sif í Morgunblaðið í dag og gefur henni fimm stjörnur. Í umfjölluninni segir meðal annars: „Á yfirborðinu má segja að einfaldleikinn ráði ríkjum í bók Birgittu um Ólíver, en þegar betur er að gáð verður ljóst að bókin leynir svo sannarlega á sér. Ekki er mikill texti á hverri síðu en texti og myndir spila listilega vel saman með þeim árangri að myndirnar bera stóran hluta sögunnar áfram og undirstrika mátt ímyndunarinnar. … Hér er á ferðinni hrífandi bók sem er, líkt og söguhetjur hennar, alveg sérstök.“

Silja er ekki sú eina sem lætur hrífast af Ólíver. Maríanna Clara Lúthersdóttir skrifaði um bókina í vefritið Druslubækur og doðrantar og sagði meðal annars: „Þótt textinn sé bæði einfaldur og mjög fáorður er hann þó skemmtilega opinn fyrir túlkun og þar koma myndirnar auðvitað sterkar inn. Þær eru alveg frábærar … Það er nú allur gangur á hversu vandað efni er borið á borð fyrir yngstu kynslóð lesenda og því ber að fagna bók sem sameinar alveg sérstaklega fallegar myndir og boðskap sem skiptir máli.“

Ólíver er fyrsta bók Birgittu Sifjar og var frumútgefin í sex löndum fyrr í vetur, meðal annars hjá hinu virta barnabókaforlagi Walker Books í Bretlandi. Hún hefur einnig fengið frábærar viðtökur ytra og sagði gagnrýnandi Bookseller meðal annars: „frábær frumraun … texti með djúpri merkingu og líflegar myndir ríkar af smáatriðum gera þessa bók að algerri perlu.“

INNskráning

Nýskráning