Bókarýnir Fréttatímans, Páll Baldvin Baldvinsson, gefur nýja Fuglavísinum hans Jóhanns Óla Hilmarssonar fullt hús í dómi sínum í dag, fimm stjörnur. „Bók sem á að vera til á hverju heimili með glugga móti himni, garði eða götu,” skrifar Páll og hrósar einnig útliti og umbroti bókarinnar. Fuglavísirinn hefur verið ein af vinsælustu handbókum síðari ára en áhugi landsmanna, og erlendra gesta sem hingað sækja, á fuglum fer sífellt vaxandi. Horfum til himins.