Einar Falur Ingólfsson gefur ljóðabók Þorsteins frá Hamri fimm stjörnur í Morgunblaðinu í dag. „Hefðin, sagan, bókmenntir, samvera og vinátta, ógn sem náttúrunni stendur af mönnum, viðhorf í tímanum, og sjálfur tíminn sem líður; Þorsteinn frá Hamri kemur víða við í nýrri ljóðabók sinni, Skessukötlum,“ segir hann. „Þetta er meitlað verk og fágað, eins og við er að búast frá vandvirku og snjöllu skáldinu, og að öllu leyti í rökréttu framhaldi af síðustu bók Þorsteins, Allt kom það nær, sem kom út fyrir tveimur árum.“ Einar Falur tekur nokkur dæmi úr bókinni máli sínu til stuðnings og segir svo: „Skessukatlar Þorsteins frá Hamri er áhrifamikið verk sem leitar á lesandann og dýpkar við hvern lestur.“ Loks fær útlitshönnuður bókarinnar verðskuldað hrós: „Ástæða er til að hrósa haganlegri kápuhönnun Jóns Ásgeirs; hvernig honum hefur tekist að mynda skessukatla í pappír á kápu bókarinnar.“