Það hreinlega hrúgast inn nýjar bækur þessa dagana og við vekjum athygli á fjölda nýrra barnabóka. Fyrir þau allra yngstu eru komnar tvær harðspjaldabækur um Múmínálfana og aðdáendur músarinnar Maxa geta kæst yfir nýju ævintýri hennar í bókinni Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann. Kvæðabókin Óðhalaringla er skyldueign á hverju heimili en sú bók hefur nú loksins verið endurútgefin. Í næstu viku er von á nýrri bók um húsdýrin eftir Halldór Á. Elvarsson, sú heitir Upp í sveit, en þá koma einnig út endurútgáfur bókanna En hvað það var skrýtið og Í grænni lautu.