Nýlega var sagt frá Íslenskum fuglavísi sem út kom í nýrri útgáfu á ensku og þýsku auk íslensku í sumar á Birdbooker Report – síðu sem fjallar um nýútkomnar bækur um náttúrufræði í Bandaríkjunum og á Bretlandseyjum (og nú einnig á Íslandi!). Þar mælir höfundur síðunnar, Ian Paulsen í Seattle, eindregið með bókinni og segir að þessa bók verði allir fuglaskoðarar með áhuga á Íslandi að eignast. Umsögnin hefur síðan verið tekin inn á vísindafréttahlið vefs The Guardian.