Frumkvöðullinn Ása Wright – fyrirlestur í HÍ

Í tilefni af útkomu ævisögu Ásu Guðmundsdóttur Wright, Kona þriggja eyja, mun Inga Dóra Björnsdóttir mannfræðingur og höfundur bókarinnar,  segja frá frumkvöðlastarfi Ásu á sviði náttúruverndar og vísinda í opnum hádegisfyrirlestri í Háskóla Íslands,  miðvikudaginn 25. nóvember.

Árið 1967 var fyrsta náttúrufriðland í Karíbahafinu opnað á eyjunni Trínidad, rétt undan norðausturströnd Venezuela. Einn aðal hvatamaður að stofnun þess og eigandi landsins var íslensk kona, Ása Guðmundsdóttir Wright og ber svæðið nafn hennar Asa Wright Nature Center.  Í dag er friðlandið þjóðarstolt Trínidadbúa og dregur að fjölda gesta, enda er Asa Wright Nature Center einstök náttúruperla sem býr yfir ótrúlega fjölbreyttu dýra-, fugla- og plöntulífi.

Í erindi sínu mun Inga Dóra segja stuttlega frá ævintýralegu lífi Ásu og fjalla um aðdragandann að stofnun friðlandsins. Hún mun segja frá  því hvernig land Ásu varð eftirsóttur dvalastaður bandarískra og breskra náttúruvísindamanna, sem sóttust ekki aðeins eftir að stunda þar rannsóknir, heldur líka eftir félagsskap Ásu sem  var ákaflega sterkur og litríkur persónuleiki og í raun þjóðsagnapersóna í lifanda lífi.

Fyrirlesturinn, sem haldinn verður í stofu 102 á Háskólatorgi  25. nóvember 2009 kl. 12 – 13:15,  er öllum opinnn og haldinn í samstarfi Stofnunar Sæmundar fróða og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands.

Inga Dóra Björnsdóttir er doktor í mannfræði og hefur um árabil kennt mannfræði við Kalíforníuháskóla í Santa Barbara. Hún hefur einnig kennt við Háskóla Íslands og verið þar prófdómari. Hún hefur meðal annars unnið við rannsóknir á þjóðernishyggju, kvennahreyfingum og á íslenskum konum sem giftust bandarískum hermönnum á stríðsárunum. Hún er höfundur bókarinnar um Ólöfu eskimóa.

INNskráning

Nýskráning