Irene Nemirovsky

Frönsk svíta fær frábæra dóma

Meistaraverkið Frönsk svíta sem gerist í Frakklandi í seinni heimsstyrjöldinni hefur fengið frábæra dóma. Í Fréttatímanum gefur Páll Baldvin Baldvinsson bókinni fimm stjörnur og segir m.a. í dómnum:

„Svítan franska er heillandi saga, hún er hörkuspennandi, samin af mikilli andagift, djúpu innsæi í hug lesanda og þeirra persóna sem þessi glæsilega skáldkona dregur upp ljóslifandi.“

Ekki var umfjöllun um bókina í Kiljunni síðasta miðvikudagskvöld síðri þar sem Kolbrún Bergþórsdóttir, Páll Baldvin og Egill Helgason voru öll sammála um að hér væri meistaraverk á ferð, skrifað af mikilli skáldkonu.

Bókin Frönsk svíta er afar sérstök að því leyti að hún kom út rúmum sextíu árum eftir dauða Irène Némirovsky, höfund bókarinnar, en hún lést í útrýmingarbúðum nasista. Bókin hefur slegið í gegn hvar sem hún er gefin út og fengið afar góða dóma.

Dóttir Irène Némirovsky, Denise Epstein, er stödd á Íslandi þessa dagana í boði Bókmenntahátíðar. Hún mun spjalla um verk móður sinnar við Friðrik Rafnsson í Norræna húsinu á morgun en þar fara fram höfundaviðtöl frá 12:30 – 15:00. Einnig var opnuð ljósmyndasýning í Borgarbókasafninu af tilefni komu Denise Epstein til landsins þar sem myndir af ævi og starfi móður hennar eru til sýnis.


INNskráning

Nýskráning