Frönsk svíta

Frönsk svíta á Bókmenntahátíð

Metsölubókin Frönsk svíta eftir Irène Némirovsky kemur út á íslensku í þýðingu Friðriks Rafnssonar nk. þriðjudag. Í tilefni af Bókmenntahátíð í Reykjavík er einnig von á dóttur hennar, Denise Epstein, í heimsókn hingað til lands. Bókin hefur farið sigurför um heiminn en baksaga hennar er hreint einstök.

Irène Némirovsky var franskur rithöfundur af úkraínsku bergi brotin sem naut mikillar hylli í Frakklandi á fjórða áratug síðustu aldar. Svo skall síðari heimsstyrjöldin á.  Þar sem Irène var gyðingur var hún handtekin og flutt til Auschwitz og átti ekki afturkvæmt þaðan.  Verk hennar féllu í gleymsku en dætur hennar Elisabeth og Denise unnu ötullega að því að minna á verk móður sinnar. Eitt þeirra kom þó ekki í leitirnar fyrr en nýlega þegar óbirt handrit eftir Irène fannst í skjalasafni en það kom síðan fyrst út hjá forlaginu Denoël árið 2004.

Denise Epstein mun einnig opna ljósmyndasýningu um ævi og ritverk móður sinnar nk. miðvikudag, þann 7. september kl. 17, í Borgarbókasafninu í Reykjavík. Sýningin ber yfirskriftina „Ég skrifa á brennheitu hrauni…“ en hún er skipulögð á vegum Alliance française í Reykjavík og er liður í hátíðarhöldum vegna aldarafmælis félagsins á árinu.  Hún er sett upp í samstarfi við Borgarbókasafn Reykjavíkur og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og stendur til 30. september, aðgangur er ókeypis og allt áhugafólk um bókmenntir og sögu velkomið.

INNskráning

Nýskráning