Frítt í bíó – Bókaþjófurinn

Við erum geysispennt fyrir kvikmyndaaðlögun á hinni ástsælu sögu um Bókaþjófinn eftir Markus Zuzak. Því bjóðum við bókelskum vinum okkar á forsýningu myndarinnar í Háskólabíói á miðvikudaginn kl. 20. Það sem þú þarft að gera til að komast á gestalista sýningarinnar er að senda tölvupóst á netfangið forlagid@forlagid.is og segja já, takk fyrir kl. 18, þriðjudaginn 21. janúar. Miði gildir fyrir tvo og fyrstur kemur fyrstur fær.

ATH: Búið er að gefa alla miða sem til voru. Haft verður samband við þá heppnu. Við þökkum frábærar viðtökur.

Á meðan hryllingur seinni heimsstyrjaldarinnar dynur Þýskalandi finnur hin unga Lisel hugarró í því að stela bókum og deila þeim með öðrum. Hún var send í fóstur til Hubermann-hjónanna  því móðir hennar get ekki séð henni farborða. Þjökuð af sorg of söknuði eftir móður sinni byrjar Lisel að lesa, bæði fyrir sig og aðra sem eiga um sárt að binda á meðan dauðinn er alltumlykjandi. Meðal leikara í myndinni eru Geoffrey Rush og Emily Watson.

Myndin verður síðan frumsýnd nk. föstudag í Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri.




INNskráning

Nýskráning