Lina og Ayda

Friðarhorfur í Palestínu?

Ríkisfang Ekkert eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur kom út fyrir réttri viku og hefur verið gríðarvel tekið. Skagamenn og aðrir gestir troðfylltu Garðakaffi á Akranesi þegar útgáfunni var fagnað og fullt var út úr dyrum á fyrsta málfundi Alþjóðamálastofnunar háskólans og Forlagsins um bókina. Á báðum stöðum seldist bókin upp, enda vinsælt að fá skrautlega arabíska áritun á titilsíðuna.

Palestínsku konurnar voru teknar tali í Kastljósi Ríkisútvarpsins daginn sem bókin kom út, auk þess sem fjallað hefur verið um bókina í dægurmálaútvarpi Rásar 2, Speglinum, Víðsjá og víðar.

Fundaröðin heldur áfram miðvikudaginn 21. september. Þá ræðir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fv. utanríkisráðherra, um friðarhorfur í Palestínu og segir frá starfi sínu með alþjóðlegum friðarsamtökum ísraelskra og palestínskra kvenna.

Málfundurinn fer fram í stofu 101 í Odda kl. 12.25–13.20. Að honum loknum verður bókin til sölu og hægt að fá hana áritaða.

INNskráning

Nýskráning