Frelsi eftir Lindu Vilhjálmsdóttur var ein vinsælasta ljóðabók síðasta árs og seldist algjörlega upp fyrir jólin. Gagnrýnendur kepptust við að lofa bókina og var m.a. valin ljóðabók ársins í Morgunblaðinu. Nú er hún komin aftur!
Frelsi er sjötta ljóðabók Lindu. Fyrstu ljóð hennar birtust í blöðum og tímaritum en fyrsta ljóðabók hennar, Bláþráður, kom út 1990. Langt er síðan Linda sendi síðast frá sér ljóðabók en auk ljóða hefur hún skrifað sjálfsævisögulega skáldsögu sem vakti mikla athygli, Lygasögu.
Linda er eitt besta ljóðskáld okkar og ný bók frá henni alltaf stórtíðindi. Frelsi geymir um fimm tugi beittra, pólitískra ljóða: meitlaðar og áhrifaríkar ljóðmyndir spegla samfélag og samtíma, og þvinga jafnvel lesandann til miskunnarlausrar sjálfsskoðunar.
Áleitin bók sem hreyfir við hugsunum og tilfinningum.