Framúrskarandi fræðirit

Á dögunum var tilkynnt hvaða fræðirit hljóta tilnefningu til viðurkenningar Hagþenkis. Viðurkenningarráð félagsins kynnti þá lista yfir tíu framúrskarandi fræðirit og námsgögn sem til greina koma að þessu sinni en á þeim lista var meðal annars að finna bók Sæunnar Kjartansdóttur, Árin sem engin man, ævisögu Jóns Leifs, Líf í tónum, skráða af Árna Heimi Ingólfssyni tónlistarfræðingi og ÞÞ – Í forheimskunarlandi seinna bindi ævisögu Þórbergs Þórðarsonar eftir Pétur Gunnarsson.

Viðurkenning Hagþenkis telst til virtustu og veglegustu verðlauna sem fræðimönnum og höfundum fræðilegra rita fyrir skóla og almenning getur hlotnast. Öll fræðirit sem koma út á Íslandi koma til greina við veitingu viðurkenningarinnar óháð útgefanda eða tilnefningum. Verðlaunaupphæðin er kr. 750.000 en tilkynnt verður um úrslit við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í mars.

INNskráning

Nýskráning