Í ár eru hundrað ár liðin frá því að Þórbergur Þórðarson gekk hina frægu framhjágöngu í örvæntingarfullri ástsýki. Þessari göngu og ævintýrinu í kringum hana lýsir Þórbergur á gáskafullan hátt í skáldævisögunni Íslenskur aðall.
Í tilefni 100 ára afmælis þessarar frægustu gönguferð íslenskra bókmennta hefur bókin nú verið endurútgefin með formála rituðum af Pétri Gunnarssyni.
Það eru fleiri sem fagna afmælinu. Endurmenntun Háskóla Íslands býður upp á námskeið um framhjágönguna og Ferðafélag Íslands mun ganga leiðina löngu á 13 dögum í sumar.