Fram hjá

Fram hjá tilnefnd til verðlauna

Fram hjá eftir Jill Alexander Essbaum var á dögunum tilnefnd til hinna virtu PEN bókmenntaverðlauna, en þau þykja ein þau merkustu í Bandaríkjunum.

PEN verðlaunin eru veitt í átta flokkum en Fram hjá, sem á frummálinu heitir Hausfrau, er ein bókanna sem tilnefnd í flokki frumrauna á skáldsagnasviðinu. Aðstandendur verðlaunanna taka fram að til að vera tilnefnt þurfi verkið að hafa bókmenntafræðilega vigt auk þess að gefa góð fyrirheit um næstu verk.

Jill Alexander Essbaum er bókmenntaprófessor og skáld sem hefur gefið út ljóðabækur og hlotið viðurkenningar fyrir þær en Fram hjá er fyrsta skáldsaga hennar. Henni hefur verið lýst sem djarfri og taugatrekkjandi skáldsögu um siðgæði og sjálfsmynd, ófullnægju og rótleysi.

Frekari upplýsingar um tilnefndar bækur má finna hér.

INNskráning

Nýskráning