Árni Þórarinsson rithöfundur heldur brátt í mikla Frakklandsför en þá er ferðinni heitið á bókamessuna Salon du livre í París og síðan á spennusaganahátíð í Lyon með viðkomu í Montpellier. Frakkar hafa tekið bókum Árna afar vel, en skemmst er að minnast velgengni spennusögunnar Sjöunda sonarins þar í landi sem var afar þaulsetin á metsölulistum. Forlagið Métailié gefur út bækur Árna í Frakklandi og er von á franskri útgáfu Morgunengils haustið 2012.