Gagnrýnendur Kiljunnar töluðu í vikunni um endurútgáfuna á ljóðabókinni Nei eftir Ara Jósefsson og voru hæstánægðir með að fá hana í hendur aftur. Þau Egill, Þröstur og Fríða Björk voru sammála um að með Ara hefði dáið mjög gott skáldefni og Þresti fannst full ástæða til að lyfta undir þessa bók.
„Mér finnst þessi bók hafa elst mjög vel og margt í þessum ljóðum hefur víða skírskotun til samtímans,“ sagði Fríða Björk. „Hann gæti allt eins verið að tala til okkar þegar hann yrkir um stríðsrekstur, um ástina, um ýmislegt sem tilheyrir náttúrunni og innri átökum ungs manns. Þetta er allt saman eitthvað sem við getum auðveldlega samsamað okkur. Þess vegna finnst mér frábært að þessi bók skuli nú koma út í þriðja sinn.“
Egill hafði orð á því að ljóð Ara vísuðu fram til Einars Más af því það væri „soldið bítnikk í þessu líka!“ Og félagar hans í settinu tóku undir það. Svo spilaði Egill einstaklega fallegt brot úr Rykkorni frá 2009 þar sem Bragi Kristjónsson talar um Ara en þeir voru vinnufélagar um tíma og nánir vinir meðan báðir lifðu.