Ferðaglaðir Íslendingar hafa tekið nýrri kortalínu Forlagsins fagnandi og síminn hefur vart stoppað frá því að Atlaskorta-askjan var kynnt. Atlaskortin eru án efa einn viðamesti flokkur korta af Íslandi sem nokkru sinni hefur komið fyrir almenningssjónir og ekki spillir umgjörðin. Í kassanum er að finna 31 stórbrotið kort sem sýnir landið allt – frá annesjum til eyja – uppfært með allra nýjustu upplýsingum. Við vekjum athygli á því að askjan fæst nú á sérstöku kynningarverði og þeir sem vilja nýta sér greiðsludreifingu þurfa aðeins að hafa samband við okkur gegnum netfangið forlagid@forlagid.is. Þú verður aldrei áttavillt/ur með þennan farangur í skottinu.