Flottir ferðafélagar í sumar

Nú þegar sumarið er handan við hornið fara fjallageitur, ferðafrömuðir og útivistarfólk á stjá og leggja eigið land undir fót. Forlagið hefur á undanförnum dögum gefið út tvær frábærar útivistarbækur sem við hvetjum alla sem ætla sér að sækja landið heim að kynna sér.

Páll Ásgeir Ásgeirsson þarf vart að kynna fyrir útivistarfólki, hann hefur verið tryggur ferðafélagi margra hvort heldur sem er í eigin persónu eða með leiðsögn í formi ferðabóka sem hann hefur skrifað.

Nú er komin ný  ferðabók sem ber heitið 155 Áfangastaðir  í alfaraleið, þar er á ferðinni aukin og endurbætt útgáfa bókarinnar 101 áfangastaðir í alfaraleið , sem naut mikilla vinsælda þegar hún kom út í fyrra.

Átta gönguleiðir í nágrenni Reykjavíkur er hinsvegar fyrsta bók Einars Skúlasonar, sem þó er margreyndur fjallagarpur, en í bókinni má finna fjölda glæsilegra mynda og skemmtilegra lýsinga. Einar stýrir gönguhópnum Vesen og vergangur og eru leiðirnar sem í bókinni eru byggðar á  ferðum sem hópurinn hefur farið á undanförnum misserum.

Það ætti enginn áhugamaður um göngur og útivist að láta þessar bækur framhjá sér fara.

INNskráning

Nýskráning