Nú hefur verið bætt úr brýnni þörf á nýju námsefni í stjórnunarfræðum með tveimur nýjum bókum.
Leiðtogafærni – Sjálfsskilningur, þroski og þróun fjallar um leiðtogafærni í ljósi sálarfræði og hugvísinda. Í bókinni er fjallað um tilfinningar, hugsun og atferli leiðtogans, persónulega stefnumótun, áhrif viðhorfa og væntinga sem og áhrifum persónuleika hvers og eins.
Stefnumótunarfærni – Markmið, stefna og leiðir fjallar um stefnumótun sem fræðigrein og hagnýtingu hennar í atvinnulífinu. Með bókinni er ætlunin að gera lesendur færari um að taka virkan þátt í stefnumiðaðri stjórnun. Með þeim hætti styrkja þeir þátttöku sína í atvinnulífinu.
Höfundar bókanna eru Dr. Helgi Þór Ingason og Dr. Haukur Ingi Jónasson, forstöðumenn í meistaranámi í verkefnastjórnun á Íslandi (MPM) og ráðgjafar hjá Nordica ráðgjöf ehf. Þeir hafa unnið farsælt starf saman í tíu ár og hafa nú loksins sett niður hugmyndir sínar á blað fyrir almenning til að njóta.