Frábær skáldsaga um sannleika og lygi

Jón Yngvi Jóhannsson er skeleggur í dómi sínum um fyrstu skáldsögu Kristínar Eiríksdóttur, Hvítfeld, í Fréttablaðinu í dag. Upptakturinn að sögunni gæti verið byrjunin á nokkuð hefðbundinni íslenskri ættarsögu, segir hann, „en það kemur fljótlega í ljós að í þessari sögu er ekkert eins og það sýnist og allra síst sögukonan sjálf, Jenna Hvítfeld.“

Þetta reyndist vera „fjölskyldusaga þar sem hefðbundin form og mynstur slíkra sagna eru teygð og toguð í ýmsar áttir. Um leið fjallar hún um það að segja sögur, sögur sem við notum til að skýra sjálfsmynd okkar og stað í heiminum, litlar goðsagnir sem halda fjölskyldum saman eða sundra þeim. … Sögur Jennu og fjölskyldu hennar segir Kristín af fádæma öryggi og list. Jenna er ekki eini blekkingameistarinn í þessari bók, yfir henni vakir söguhöfundur sem fær lesandann til að trúa lygum og efast um sannleikann á hverri síðu. Í sinni fyrstu skáldsögu sýnir Kristín fádæma tök á forminu, það má mikið vera ef þetta er ekki upphafið að ferli stórbrotins skáldsagnahöfundar.“

Niðurstaða Jóns Yngva er: „Frábær skáldsaga um íslenska fjölskyldu, sannleika og lygi.“ Og fjórar stjörnur!

INNskráning

Nýskráning