Í síðustu viku kom skáldsagan Korter út eftir Sólveigu Jónsdóttur. Bókin fjallar um fjórar konur sem eiga fátt sameiginlegt annað en að stunda Café Korter og vera á tímamótum í lífi sínu. Allar standa þær frammi fyrir breytingum í lífi sínu og fjallar bókin um það hvernig þær bregðat við þeim.
Bókin hefur nú þegar fengið glimrandi dóma. Blaðamaður Fréttatímans segir bókina slá Bridget Jones út enda séu persónur bókarinnar lausar við minnimáttarkenndina sem hrjáir Jones. Í bókadómi Fréttablaðsins segir Þórunn Hrefna Korter vera „ansi hreint skemmtileg bók og dýpri en flestar úr skvísugeiranum.“ Í bókadómi DV er tekið undir það og sagt að „kaldhæðinn stíll Sólveigar [fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“][gefi] sögunni myrkt og töffaralegt yfirbragð.“ Allir eru á sama máli að bókin sé frábær frumraun hjá Sólveigu, en Korter er fyrsta bók hennar.
[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]