Fortíð og nútíð spjalla saman

Það er alls ekkert nýtt að ævisögur njóti hylli á íslenskum jólabókamarkaði. Nú virðast tvær slíkar bera hæst, annars vegar er saga Þóru Pétursdóttur og hins vegar Gunnars Thoroddsen. Þessar bækur eru um margt ólíkar en eiga þó sammerkt að lýsa íslensku samfélagi á liðinni tíð. Á það hefur verið bent í ritdómum að þessar sögur beri með sér að enda þótt ár og áratugir skilji þau og okkur að sé þó margt sem ekki breytist hér á landi á.

Silja Bára Ómarsdóttir bendir í umsögn sinni um Þóru biskups á vefritinu Stjórnmál og stjórnsýsla á að íslenskir höfðingjar höfðust undir lok 19. aldar að á keimlíkan hátt og ríka og fræga fólkið gerði á nýliðinni tíð fyrir hrun. Hún segir:

„Saga Þóru sýnir að þótt margt hafi breyst á Íslandi á síðustu öld er ýmislegt sem ekki hefur breyst. Í brúðkaupsveislu Þóru og Þorvaldar er „búið að skála í Veuve Clicquot, drekka svolítið Chablis með humrinum og ostrunum, hella í sig Margaux með lambalærinu og trufflusveppunum. Réttirnir eru alls sex og víntegundirnar ellefu“ (143). Myndir af galakvöldverðum útrásarinnar koma ósjálfrátt upp í hugann við þessa lýsingu.“

Og enn segir Silja Bára:

„… sýnir saga Þóru hvernig Íslendingar litu á sig, töldu sig þrátt fyrir fámennið hafa í fullu roði við sér stærri þjóðir og eiga erindi á alþjóðavettvangi þrátt fyrir litla þekkingu og þjálfun. Þetta sést best í lýsingum á listnámi Þóru í Kaupmannahöfn. Hún er sögð hafa litla þolinmæði, vera fljótt „orðin þreytt á krukkum og kirnum og vill fara að mála náttúruna með olíulitum. [Kennarinn] brosir að óþreyju hennar og segir hana fyrst verða að ná tökum á krukkunum áður en hún fer út í náttúruna. Og það er þetta sem hún er að læra og átta sig á: „heima höldum við að hægt sé að læra allt á stuttum tíma, en [í Kaupmannahöfn] er önnur skoðun á hlutunum“. Atburðir síðustu ára sýna okkur að lítið hefur breyst hvað þetta varðar.“

Guðni Th. Jóhannesson, höfundur ævisögu Gunnars Thoroddsen, hefur sagt í gamni að bók sín sé nokkurs konar sitt privat-wikiLeaks! Enda er sagan byggð á gríðarlegu heimildasafni og margar af þeim heimildum voru alls ekki ætlaðar til að koma fyrir almenningssjónir.

Ólafur Þ. Harðarson staldrar í umsögn sinni um bókina á vefritinu Stjórnmál og stjórnsýsla við þau gögn sem Guðni byggir á og segir:

„Raunar minnir ýmislegt úr dagbókum og plöggum Gunnars á upplýsingarnar sem koma fram í orðréttum viðtölum við ráðamenn í nýlegri skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis; í báðum tilvikum er margt sagt tæpitungulaust og af meiri hreinskilni en við eigum að venjast þegar stjórnmálamenn tjá sig opinberlega.“

Semsé, góðærislífstíll þá og nú, wikiLeaks og rannsóknarskýrslur fortíðar og nútíðar. Fortíð og nútíð ræða saman – við berum áleitnar spurningar samtímans undir fortíðina. Þess vegna eru góðar og vandaðar ævisögur … góðar. Og vinsælar!

Umsögn Ólafs um Gunnar Thoroddsen má lesa í heild á vefritinu Stjórnmál og stjórnsýsla. Og umsögn Silju Báru um Þóru biskups er sömuleiðis á Stjórnmál og stjórnsýsla.

INNskráning

Nýskráning