Dagbók frá veröld sem var með glæsilegum ljósmyndum Bandaríkjamannsins Emils Edgren frá stríðsárunum á Íslandi hefur vakið verðskuldaða athygli. Í Kiljunni í sjónvarpinu gengu Egill Helgason og Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðingur um götur Reykjavíkur með bókina og sýndu muninn á veruleikanum nú og þá á skemmtilegan hátt. Og í helgarblaði Fréttablaðsins 12. nóvember var svo viðtal við eina af systrunum frá Gunnarshólma sem prýða kápu bókarinnar.
Systirin sem blaðamaðurinn talar við heitir Auður Gunnarsdóttir og er sú yngsta á myndinni, sú sem krýpur fyrir framan hinar þrjár. Hún minnist æskuáranna með mikilli hlýju í viðtalinu en ekki kemur fram hvort hún man eftir því þegar Emil tók myndirnar af þeim systrum og Sigríði kaupakonu.
Dýrmæt viðbót í blaðinu er svo myndin af systrunum fimm frá Gunnarshólma eins og þær líta út núna, glæsilegar konur á áttræðis- og níræðisaldri.