Skugglæsinginn

Forlagsbækur í toppsætum

Bækur Forlagsins hafa átt góðu gengi að fagna á metsölulistum að undanförnu. Skuggasund eftir Arnald Indriðason situr í efsta sæti Eymundsonlistans sem og heildarlista FÍBÚT yfir söluhæstubækur landsins. Skuggasund er 17. bók Arnaldar og ekkert lát virðist vera á vinsældum hans.

Í öðru sæti Eymundssonlistans situr svo Ólæsinginn sem kunni að reikna eftir Jonas Jonasson en hún virðist ætla að fylgja eftir ótrúlegum vinsældum bókar Jonasar frá því í fyrra, Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf. En ekki nóg með það heldur situr Ólæsinginn í tveimur efstu sætum FÍBÚT-lista þýddra skáldverka. Þetta útskýrist af því að bókin er gefin út bæði innbundin og í kilju.

INNskráning

Nýskráning