Þórarinn Þórarinsson fagnar nýjum höfundi og nýstárlegum viðfangsefnum hans í umsögn um Vince Vaughn í skýjunum eftir Halldór Armand Ásgeirsson í Fréttatímanum í dag. Þórarinn segir að íslenskir rithöfundar forðist margir hverjir nútímann en Halldór „bregst vasklega við samtímakröfunni … og dembir sér út í sturlaðan netheiminn þar sem allir geta orðið frægir eða alræmdir“.
„Stíll Halldórs og myndmál eru í meira lagi lífleg,“ segir Þórarinn síðar í umsögninni, „og textinn flæðir áreynslulaust alveg spriklandi fjörugur og kallast þannig á við viðfangsefnið, þennan ofsahraða og tætingslega samtíma okkar þar sem öll merking er einhvern veginn upp í loft. … Halldór opnar á skemmtilegar pælingar um þann ágenga gerviheim sem hefur tekið yfir rúðustrikað samfélag fortíðarinnar og gerir þetta allt býsna vel og af ungæðislegum þrótti sem hlýtur að springa enn betur út í seinni verkum höfundarins.“