Björg Magnúsdóttir

Flott frumraun

Friðrika Benónýsdóttir fjallar um skáldsöguna Ekki þessi týpa eftir Björgu Magnúsdóttur í Fréttablaðinu á laugardag og gerir það afar lofsamlega, ljóst er að hún hefur skemmt sér gríðarlega vel við lesturinn.  Friðrika byrjar á að fjalla um tenginguna við Sex and the City og Girls og segir Björgu fara bil beggja en að í bókinni séu þó íslensk sérkenni: „en aðallega þó alveg hellingur af íslenskum hallærisgangi, sveittum barferðum, neyðarlegum uppákomum og endalausri vináttu.“ Friðrika segir bókina vera „flotta frumraun“ og er ánægð með það hvernig Björg hefur leikið sér með klisjur í verkinu sem greinilega hefur kitlað hláturtaugarnar: „[fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“][höfundur] leikur sér með klisjurnar fram og til baka þannig að lesandinn engist á köflum um af hlátri.“ Hún kemur einnig inn á trúverðugleika verksins: „Sagan er sannferðug og drepfyndin lýsing á baráttunni við að fóta sig í hinni glerhálu og viðsjárverðu fullorðinsveröld, baráttu sem virðist furðu lítið breytast frá kynslóð til kynslóðar.“ Þetta kemur ekki á óvart því Björg hefur einmitt sagt frá því í viðtölum hvernig margt af því sem gerist í verkinu sé byggt á sönnum atburðum. Friðrika gleðst svo yfir því að það virðist sem svo að Björg eigi eftir að skrifa fleiri sögur um þessar vinkonur og segir niðurstöðuna vera: „Hressileg og drepfyndin skvísusaga. Velheppnuð blanda af SATC og Girls með dassi af alíslenskum hallærisgangi.“

[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]

INNskráning

Nýskráning