Spennusagan Martröð millanna fær afbragðs einkunn hjá Guðríði Haraldsdóttur á Vikunni: „Hröð, spennandi og sniðug glæpasaga um svik, pretti og ofbeldi í heimi skrúðkrimmanna,“ skrifar Gurrí. „Flott saga og skemmtilegar persónur. Ágætis tilbreyting að fá hraða frásögn þar sem ekkert er verið að velta fyrir sér sálarlífi löggna og bófa í miklum mæli þótt það sé auðvitað ágætt líka. Flott frumraun hjá Óskari Hrafni.“