Bækur

Flóð í Forlaginu!

Jólabjöllurnar eru farnar að klingja hjá Forlaginu enda streyma skáldsögurnar inn í hús þessa dagana – og beina leið út í búðir.

Nýjar bækur eftir okkar fremstu rithöfunda eru nú fáanlegar, svo sem Kantata eftir Kristínu Marju, Málarinn eftir Ólaf Gunnarsson, Skáld eftir Einar Kárason og Hin eilífa þrá eftir Guðberg Bergsson. Árni Þórarinsson heldur áfram að skrifa um blaðamanninn Einar í Ári kattarins, Kristín Ómarsdóttir segir Reykjavíkursögu í Millu, Eiríkur Örn Norðdal fer víða um í nýrri skáldsögu sinni Illsku, Álfrún Gunnlaugsdóttir skrifar um gleymskuna í Siglingunni um síkin og Ófeigur segir sögu úr nýliðinni fortíð í Landvættum.

Nú er aldeilis hægt að byrja að undirbúa óskalistann fyrir jólin – en skiljið eftir pláss, það er meira á leiðinni!

INNskráning

Nýskráning