Viktor Arnar og Vilborg

Flateyjargáta og Galdur á ensku

Í kjölfar bókamessunnar í Frankfurt hafa þýðingar á íslenskum bókum stóraukist. Sérstaklega hefur enskumælandi markaðurinn opnast fyrir íslenskum bókum sem er merkilegur áfangi fyrir íslenska höfunda.

Bækurnar Flateyjargáta (The Flatey Enigma) eftir Viktor Arnar Ingólfsson og Galdur (On the Cold Coasts) eftir Vilborgu Davíðsdóttur eru nú komnar út í enskri þýðingu í útgáfu AmazonCrossing.  Flateyjargáta komst m.a.s. á metsölulista Kindle-rafbókalistans og hefur í kjölfarið selst vel á Amazon-sölusíðunni.

The Flatey Enigma á Amazon söluvefnum

On the Cold Coasts á Amazon söluvefnum

INNskráning

Nýskráning