Violent_crime

Fláræði á fimmtudegi

Árlegt glæpakvöld Hins íslenska glæpafélags verður haldið á Gallery-bar 46, Hverfisgötu 46, annað kvöld – fimmtudaginn 25. nóvember. Þar verður lesið úr nýjustu glæpasögunum og spunninn hressandi glæpadjass í bland. Meðal höfunda sem kynna verk sín verða  Óskar Hrafn Þorvaldsson sem les úr bók sinni Martröð millanna, Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir sem kynnir bók sína Mörg eru ljónsins eyru og Árni Þórarinsson, höfundur Morgunengils, sem Páll Kristinn Pálsson mun lesa úr. Allir velkomnir

INNskráning

Nýskráning