Fjöruverðlaunin

Fjöruverðlaun á sunnudag

Góugleðin, bókmenntahátíð kvenna, verður haldin í Iðnó sunnudaginn 20. mars kl. 15-17. Dagskráin hefst á erindi um Guðrúnu frá Lundi og verk hennar. Síðan verða Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, afhent í fimmta sinn.

Veitt eru verðlaun í þremur flokkum og eru þrjár bækur tilnefndar í hverjum þeirra. Í flokki fagurbókmennta eru bækurnar Blóðhófnir, Ljósa og Síðdegi tilnefndar. Í flokki fræðibóka eru það bækurnar Tónlist í leikskóla, Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar og Konan sem fékk spjót í höfuðið. Í flokki barna- og unglingabóka eru tilnefndar Íslensk barnaorðabók, Skrímsli á toppnum og Þankaganga.

Verið velkomin!

INNskráning

Nýskráning