Fjórar stjörnur í hattinn

Verðlaunasagan með langa titilinn, Það sem ég sá og hvernig ég laug eftir Judy Blundell, fellur einkar vel í kramið hjá lesendum. Gagnrýnandi Morgunblaðsins fór fögrum orðum um bókina í helgarblaðinu og skrifaði þar meðal annars að sagan væri auðlesin, viðburðarík og ógleymanleg og gaf henni fjórar stjörnur af fimm. „Hún gefur góða mynd af lífinu eftir stríð og hvernig fólk varð að fóta sig til að komast af. Þetta er virkilega góð saga um líf fimmtán ára stúlku sem vill þroskast en neyðist svo til þess allt of hratt gegn eigin vilja,“ skrifaði gagnrýnandinn Ingveldur Geirsdóttir. Bókin er fáanleg í kilju.

INNskráning

Nýskráning