„Jack Reacher er töffari af guðs náð. Friðlaus heldur lesandanum við efnið allan tímann og það er erfitt að leggja bókina frá sér fyrr en sagan er öll.“ Svo skrifar gagnrýnandi Morgunblaðsins, Steinþór Guðbjartsson, og gefur spennusögunni fjórar feitar stjörnur. Í bókinni fær hetjan og einfarinn Recher hálfan bandaríska herinn upp á móti sér, sem og afar skæðar mæðgur sem sanna svo ekki verður um villst að oft leynist flagð undir fögru. Friðlaus er frábær sumarlesning eftir Lee Child fyrir aðdáendur hörkusagna.