Sif Sigmarsdóttir skrifar skemmtilegan ritdóm um nýjasta bindi af bókaflokknum Ísland í aldanna rás, 2001-2010, í Fréttablaðið á gamlársdag undir fyrirsögninni „Saga lítilla heimóttarlegra karla“.
* * * *
„… vandfundin er skemmtilegri vettvangsrannsókn um einkavæðingu, útrás, framkvæmdagleði, ofþenslu og hrun síðustu tíu ára en Ísland aldanna rás,“ segir hún: „Efnistök eru fjölbreytt og taka þau að miklu leyti mið af því sem hátt fór fjölmiðlum hverju sinni en fjallað er um pólitík, viðskipti, listir, sakamál, íþróttir og dægurmál ýmiss konar. Útgáfan er vegleg að ytri gerð; bókin stór og pappírinn nautnalega þykkur og glansandi. … Efnið er valið af natni og er gott jafnvægi milli lengri úttekta á landsmálunum og léttri umfjöllun um mannlífið … Texti bókarinnar er lipurlega ritaður og aðgengilegur. Kímni setur mark sitt stílinn sem gerir textann jafnframt karakterríkan og grípandi.“
Niðurstaða hennar er: „Frábær vettvangsrannsókn um öld öfganna. Reyfarakennd lesning sem slær Arnaldi við.“ Enda gefur hún bókinni fjórar stjörnur.