Fyrsti dómurinn um spennusögu Árna Þórarinssonar, Morgunengil, er birtur í Morgunblaði dagsins og þar fer rýnirinn Steinþór Guðbjartsson fögrum orðum um verkið og gefur því næsta fullt hús – fjórar og hálfa stjörnu. Steinþór skrifar meðal annars: „… bókin er lygilega sannsöguleg og endurspeglar meinið í íslensku samfélagi sérstaklega vel … Þetta er frábær bók, besti krimmi sem ég hef lesið í nokkurn tíma.” Ekki amalegt start það! Árni Þórarinsson segir frá sögunni í bókaþættinum Kiljunn í kvöld, við hvetjum krimmaunnendur til að sperra eyrun.