Fjórar bækur sem komu út hjá Forlaginu á nýliðnu ári voru í dag tilnefndar til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna. Tilnefndu höfundarnir eru Jóhann Óli Hilmarsson, fyrir Íslenskan fuglavísi; Jón Yngvi Jóhannsson, fyrir Landnám. Ævisögu Gunnars Gunnarssonar; Ólafur Kvaran (ritstjóri), fyrir Íslenska listasögu I-V, frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar; og Sigríður Víðis Jónsdóttir, fyrir Ríkisfang: Ekkert. Flóttinn frá Írak á Akranes.
Verðlaunin verða afhent í Þjóðarbókhlöðunni um mánaðarmótin febrúar-mars og er verðlaunaupphæðin ein milljón króna. Hagþenkir hefur veitt viðurkenningu fyrir fræðirit og námsgögn frá árinu 1986. Í viðurkenningaráði Hagþenkis eru Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur, Fanney Þórsdóttir, lektor í sálfræði, Unnur Birna Karlsdóttir sagnfræðingur, Þorsteinn Helgason sagnfræðingur og Þórður Helgason bókmenntafræðingur.