Fjölskyldudagur

Fjölskyldudagur Forlagsins á Fiskislóð

Eins og flestir vita er sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur um land allt fyrsta sunnudag í júní.

Í Reykjavík hefur sú hefð skapast undanfarin ár að halda Hátíð hafsins á bryggjusvæðinu, þá taka fyrirtæki sig saman á þessu svæði og gera eitthvað til að hrista upp í hverdagsleikanum. Á Fiskislóð, sem er í næsta nágrenni við hafnarsvæðið, ætlar Forlagið að halda Fjölskyldudag í Forlagsbúðinni Fiskislóð 39, frá 13-15

Um 13:30 kemur Einar Einstaki í heimsókn og sýnir töfrabrögð

Ævar vísindamaður kemur í heimsókn um 14 hann ætlar að gera subbulegar tilraunir  á planinu fyrir framan búðina. Nýja bókin hans Ævars verður á sérstökum kynningarafslætti.

Við bjóðum upp á pylsur og djús og ís (á meðan birgðir endast) og svo verða góð tilboð á bókum fyrir alla fjölskylduna.

Öll börn fá strumpabók að gjöf.

Sjáumst í sannkallaðari fjölskyldustemmningu!

INNskráning

Nýskráning