Jón Gnarr

Fjölhæfur borgarstjóri

Ljóðskáldið góða Kristín Svava Tómasdóttir skrifar um Sjóræningann eftir Jón Gnarr á vefinn Druslubækur og doðrantar í gær og er ánægð með bókina: „Borgarstjóri vor er fjölhæfur maður.“ segir hún. „Ég er af Fóstbræðrakynslóðinni og vissi lengi engan fyndnari mann á Íslandi en Jón Gnarr. Hann hefur líka átt sín góðu móment sem borgarstjóri og þorað að brjóta ýmsar óskrifaðar og ömurlegar reglur.

Nýjasta bókin hans, Sjóræninginn, fjallar ekki síst um reglur kerfisins og hvaða þýðingu og afleiðingar það hefur að hlýða þeim og brjóta þær.“ Kristín Svava rekur efni bókarinnar í stuttu máli og segir svo: „Lýsingarnar á því hvernig Jón prófar sig áfram sem pönkari og anarkisti eru hlýlega fyndnar (hann er mikill harðlínumaður í skilgreiningu sinni á pönki og úthýsir smám saman nokkurn veginn öllum hljómsveitum úr þeim flokki nema Crass), en það er einn af kostum bókarinnar að frásögnin er alltaf á forsendum hans sjálfs; upprifjun hins fullorðna höfundar á hugmyndaheimi unglingsins er stuðningsyfirlýsing, ekki föðurleg kímni eða yfirlætislegar athugasemdir undir formerkjum aukins vitsmunalegs þroska. Það er kerfið sem er mannfjandsamlegt, ekki Jón sem er gallaður. Það er annars athyglisvert hvað fólk virðist vera miklu tilbúnara til að ræða eineltið sem skólafélagar Jóns beita hann en þá kúgun sem hann upplifir af hálfu skólakerfisins sjálfs, en hún er í rauninni mun miðlægari í bókinni.“ Og Kristín Svava bíður spennt eftir næstu bók í sjálfsævisögu Jóns Gnarr.

INNskráning

Nýskráning