„Fjandanum magnaðri“

Friðrika Benónýsdóttir er hjartanlega ánægð með nýja skáldsögu Péturs Gunnarssonar, Íslendingablokk, eins og fram kemur í Fréttablaðinu í dag. Hún gefur henni fjórar stjörnur og lýsir henni með fögrum orðum: „Allar eru persónurnar dregnar af næmni og samlíðan og þótt sumar þeirra séu ekkert praktexemplar af manneskju fer lesanda smám saman að þykja vænt um þær og vera á þeirra bandi. Að öðrum persónum ólöstuðum eru það þó gamlingjarnir tveir, Indriði og Hreggviður svili hans, sem eru stjörnur leiksins. Samskipti þeirra, hugleiðingar og samtöl eru mörg óborganleg, í senn leiftrandi af húmor, skilningi og hlýju frá höfundarins hendi. Einum þræði er sagan saga aldarinnar og borgarinnar undanfarna öld eða svo og þessir tveir hafa þróast með hvoru tveggja.“
Stíll Péturs hefur löngum verið ein aðalpersóna bóka hans og að mati Friðriku er hann kapítuli út af fyrir sig: „Fágaður og meitlaður, svo tæpast er hægt að hugsa sér að smeygja orði inn eða fella brott. Textinn svo knappur á köflum að lesandinn má hafa sig allan við að missa nú ekki af neinu. Hvert orð skiptir máli, hver mynd er þaulhugsuð og heildaráhrifin eru fjandanum magnaðri. Húmor Péturs nýtur sín hér til fullnustu þótt undiraldan sé grafalvarleg og stórra spurninga spurt. Þetta er ekki bók sem hægt er að lesa í einhverju flaustri enda fyllilega þess virði að treina sér hana og smjatta á hverri setningu.“
Og niðurstaða hennar er: „Fádæma vel skrifuð saga, leiftrandi af húmor, mannskilningi og hlýju en með grafalvarlegum undirtóni.“

INNskráning

Nýskráning