Við bíðum spennt eftir einni af toppbókum vetrarsins – Fjallabókinni eftir Jón Gauta Jónsson. Bókin er algjört grundvallarrit um göngur og ferðamennsku á fjöllum árið um kring, hvort heldur fyrir byrjendur eða lengra komna göngugarpa. Í bókinni er meðal annars fjallað um undirbúning og nauðsynlegan útbúnað, veðurfar, þjálfun og næringu göngufólks. Jón Gauti skrifar einnig mjög áhugaverða kafla um ólíkar tegundir ferða, s.s. jöklaferðir og fjallaklifur og í bókinni er einnig sérstaklega fjallað um fararstjórn og hlutverk leiðsögufólks.
Fjallabókin er sannarlega jólagjöf útivistarfólksins og frábær hvatning öllum þeim sem langar að komast á toppinn.
Bókin kemur út um miðjan október.