Antti Tuomainen jók umtalsvert á frægð sína í heimalandinu með spennusögunni Parantaja – sem í íslenskri þýðingu Sigurðar Karlssonar heitir Græðarinn og var að koma út.
Sagan fékk verðlaun sem besta finnska glæpasagan árið 2011 og var tilnefnd til Norræna glerlykilsins. Þau verðlaun hlaut hún ekki en hefur þó farið sigurför um heiminn, verið seld til tæplega þrjátíu landa og fengið geysilega góðar viðtökur.
Þetta er saga um hugrekki og tryggð og ástina sem er sterkasta aflið. Hún gerist í Helsinki í óræðri framtíð þar sem íbúarnir kljást við alvarlegar afleiðingar loftslagsbreytinga. Stór hluti jarðar er orðinn óbyggilegur með öllu og flóttamenn að sunnan þyrpast norður á bóginn. Óaldarflokkar vaða uppi og illvirkinn sem kallar sig „Græðarann“ myrðir vel valin fórnarlömb – auðmenn og stjórnmálamenn og fjölskyldur þeirra.
Blaðakonan Johanna er á slóð hans þegar hún hverfur nokkrum dögum fyrir jól og maðurinn hennar á erfitt með að fá fréttastjóra blaðsins og lögregluna til að sýna því áhuga. Hann verður sjálfur að hefja leit en slóðin leiðir hann dýpra og dýpra inn að kjarna myrkrar veraldar …
„Kæfandi spenna og blóðbragð á hverri blaðsíðu. Það er ekki hægt að hætta fyrr en endinum er náð …“ sagði gagnrýnandi Turun Sanomat. Gagnrýnandi La Stampa á Ítaliu sagði m.a.: „Græðarinn er í hæsta máta frumleg glæpasaga, gerólík venjulegum skandinavískum krimmum …
Antti Tuomainen lýsir af fádæma glöggskyggni hvernig stórborgarsamfélag líður undir lok.“ Gagnrýnandi Weekendavisen segir: „Ískaldur glæpur, náttúruhamfarir, pólitísk morð og ástarsaga, blandað saman af öryggi í norrænu myrkri.“ „Eins og spennandi kvikmynd alveg frá fyrstu blaðsíðu,“ sagði Pohjolan Sanomat. „Hrífandi spennusaga með dómsdagstilfinningu og dassi af leynilögreglusögu,“ sagði Westdeutscher Zeitung og Pravo í Tékklandi segir: „Græðarinn er ekki aðeins frábær spennubók heldur gefur sagan merkilega innsýn í menningu á hraðri leið til glötunar. En þrátt fyrir glundroðann ríkir ástin enn yfir illskunni.“