Í dag er hálf öld síðan fyrsta bókin um Emil í Kattholti kom út í Svíþjóð. Óborganlegar prakkarasögurnar slógu strax í gegn og mannvinurinn Emil sigraði hjörtu lesenda á öllum aldri um allan heim. Persónu Emils byggði Astrid Lindgren lauslega á föður sínum, Samuel August, og sagði um þá jafnaldrana einhverju sinni: „Á þeim tíma þegar Emil stökk um berfættur á hlaðinu í Kattholti var Samuel August líka lítill Smálandapolli, dálítið líkur honum en að sjálfsögðu gerði hann ekki jafnmörg prakkarastrik.“
„Það er lítill vafi á því að af skáldsagnapersónunum stóð Emil næst hjarta hennar,“ segir Karin Nyman, dóttir Astridar Lindgren. „Þegar hún skrifaði um hann fékk hún að rifja upp lífið í Smálöndunum þegar hún var krakki og fólkið sem hún þekkti þá.“
Á eftir Línu langsokk er Emil vinsælasta persónan sem Astrid Lindgren skapaði. Til þessa hafa hafa bækurnar um Emil verið gefnar út á 52 tungumálum, oftast með upprunalegum myndum Björns Berg, og meira en 35 milljónir eintaka hafa selst.
Astrid skrifaði þrjár skáldsögur um Emil sem allar hafa komið út í íslenskri þýðingu Vilborgar Dagbjartsdóttur. Að auki hafa nokkrar myndabækur um Emil komið út með frábærum myndum eftir Björn Berg. Ein þeirra er nú fáanleg á íslensku: Ja, þessi Emil, í þýðingu Vilborgar og Böðvars Guðmundssonar.
Í heimalandi Emils verður haldið upp á afmælið í dag með skrúðgöngum og hátíðahöldum á leikskólum og bókasöfnum. Á laugardaginn kemur verður hátíð prakkaranum til heiðurs á Skansinum í Stokkhólmi. Í júlí verður frumsýnd ný kvikmynd um Emil í Kattholti, sem byggð er á öllum þremur skáldsögum Astridar Lindgren um piltinn.