Við minnum á þessa afar metnaðarfulla söfnun Þorgríms Þráinssonar fyrir Barnaspítala Hringsins. Í haust tók Þorgrímur sig til og handskrifaði eintak af nýrri bók sinni, Ég elska máva, og fékk nokkra af þekktustu myndlistarmönnum þjóðarinnar til þess að myndskreyta verkið. Nú getur þú átt möguleika á því að eignast þennan einstaka grip og hjálpað Barnaspítala Hringsins í leiðinni.
Söfnunin gengur svona fyrir sig:
Þú leggur 1.500 krónur inn á meðfylgjandi bankareikning Barnaspítalans: 513-26-22241, kennitala: 640394-4479, og sendir svo kvittun fyrir greiðslu á eftirfarandi netfang: egelskamava@gmail.com.
Fyrir framlagið getur þú getur unnið einstakt handskrifað eintak af nýjustu bók Þorgríms, Ég elska máva, sem myndskreytt hefur verið af 15 listamönnum, t.d. Erró, Tolla og Hugleiki Dagssyni.
Allar frekari upplýsingar má finna á Facebook-síðu söfnunarinnar hér að neðan. Við hvetjum ykkur til að leggja söfnuninni lið.