Nýjasta bók Steinars Braga, Hálendið, hefur á síðustu dögum haft nætursvefninn af fjölmörgum lesendum, „tveggja martraða-bók“, segir einn þeirra í umsögn. Og Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, gagnrýnandi Fréttablaðsins, gaf verkinu fullt hús stiga, fimm stjörnur, í dómi á dögunum.
Í umsögn segir Þórunn Hrefna: „Steinar Bragi er frábærlega djúpur, frumlegur og heillandi höfundur, sem hefur einhver ofurmannleg tök á því sem hann gerir … Gríðarflott, frumlegt og hyldjúpt skáldverk“