Valeyrarvalsinn eftir Guðmund Andra hefur fengið gífurlega góða dóma og er bókin gjörsamlega stjörnum hlaðin. Stíll Guðmundar Andra hefur verið lofaður og takturinn fallegi sem hann skrifar í en einnig skilningur og væntumþykja höfundar á viðfangsefni sínu, sem eru fyrst og fremst breyskar manneskjur með alls kyns fortíð og reynslu í farteskinu.
Valeyrarvalsinn er sagnasveigur, margradda og hrífandi skáldverk þar sem 16 sögur fléttast saman, kallast á, botna hver aðra og skarast margvíslega enda gerast þær allar á sömu tveimur mínútunum í litla þorpinu, Valeyri.